Uppskrift Fylltar Paprikur

3 geirar Hvítlaukur
1/2 stk Laukur (Smátt saxaður)
500 g Hakk
1 dós Tómatar (Hakkaðir)
2 msk Tómatpúrra
1 stk Pepperoni Ostur
Ítölsk Kryddblanda
Hvítlaukskrydd
-- Skref 1 Skerið toppinn af hverri papriku og saxið þann hluta niður til að nýta í réttinn. Holið paprikurnar því næst að innan. -- Skref 2 Steikið hvítlauk og lauk í ólífuolíunni og bætið söxuðu paprikunni saman við og þá nautahakkinu og steikið þar til hakkið hefur brúnast vel. -- Skref 3 Hellið þá tómötum, tómatpúrru og kryddum saman við og leyfið í malla í um fimm mínútur og rífið pepperoniostinn niður á meðan. -- Skref 4 Fyllið hverja papriku til hálfs með hakkblöndu, stráið rifnum osti yfir, fyllið þá aftur með hakkblöndu og stráið aftur rifnum pepperoniosti yfir toppinn. Bakið við 180°C í um 20 mínútur.